Sunnudagur, 2. október 2011
Hvítt brúðkaup
Þau Sólrún og Héðinn giftu sig 30. apríl 2011 í Háteigskirkju. Hvítt var yfir að líta þennan laugardagsmorgunn en vor var í lofti deginum áður. Prestur var sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og við athöfnina söng Bergþór Pálsson og karlakórinn Þrestir. Einsöngvari í veislu var Gissur Páll Gissurarson og um undirleik sá Jónas Þórir.
Myndatökur fóru fram í Hellisgerði og veislan haldin í hátíðarsal Flensborgarskóla. Myndgerð og klipping: Ásvaldur Kristjánsson frá akfilm.is
Búnaður við kvikmyndatökur: Sony Z1 HDV, Sony TDX-10 og Canon 550D á 50i. Manfrotto þrífótur og braut frá DPslider.com. Hljóð tekið með Sennheiser g2 þráðlaust, sennheiser MKH 416 shotgun ásamt Zoom H1 hljóðupptökutæki. Hljóð í veislusal sent með Sennheiser sendikubb úr hljóðkerfinu.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. febrúar 2011
Brúðkaupin í sumar
Föstudagur, 19. nóvember 2010
Brúðkaupssyrpa með Irisi og Pétri
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. júní 2010
Dagurinn þeirra
Thelma Kristín Kvaran og Ingvar Birgir Jónsson gengu í það heilaga 1. maí 2010. Athöfnin fór fram í Garðakirkju á Álftanesi. Dagurinn var frábær, í Hellisgerði fóru myndatökur fram ásamt vídeóskotum. Hér er 10 mínútna syrpa frá deginum. Alls lágu tæpir sjö klukkutímar í hráefnistökum eftir daginn. Í veislunni tóku margir til máls og ekki hægt að koma öllum að í þessari stuttri syrpu. Um myndgerð sá Ásvaldur Kristjánsson hjá akfilm.is
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19. apríl 2010
Brúðkaupsupptökur
Var að kynna þjónustu mína á brúðkaupssýningunni Já í Blómavali Í Skútuvogi. Kvikmynda brúðkaup, klippi og geng frá á DVD. 10. júlí er sú dagsetning sem flestir hafa beðið akfilm.is um upptökur en sá dagur var frátekin fyrir ári síðan. Fólk virðist byrja bóka seinna í ár en áður. Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. mars 2010
Brúðkaupið á DVD í sumar
akfilm.is er ný síða þar sem kynnt er meðal annars sú þjónusta að kvikmynda brúðkaup og ganga frá því á DVD. Allt er komið á fullt í undirbúningi hjá þeim sem ætla að ganga í það heilaga í sumar. Á brúðkaupssýningu Garðheima var þessi þjónusta kynnt sýnt nokkur myndbrot. Í stuttu máli voru viðbrögðin rosalega fín og var að heyra að fólk hafi ekki áttað sig á því að þessi þjónusta væri í boði.
Föstudagur, 27. nóvember 2009
Falleg orð
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009
Gott veður á brúðkaupsdaginn
Erna og Björn voru heppin með veðrið á brúðkaupsdaginn sinn. Hér er 3 mínútna úrdráttur frá brúðkaupsvídeóinu þeirra. Athöfnin fór fram í Háteigskirkju þar sem sr. Bjarni Karlsson gaf þau saman, 29. ágúst 2009. Söngvari var Páll Rósinkranz. Veislustjórar voru þeir Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson frá duett.is. Myndgerð: Ásvaldur Kristjánsson
>Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. apríl 2008
Brúðkaup 2008
Mánudagur, 28. janúar 2008
