Hvítt brúðkaup
Sunnudagur, 2. október 2011
Þau Sólrún og Héðinn giftu sig 30. apríl 2011 í Háteigskirkju. Hvítt var yfir að líta þennan laugardagsmorgunn en vor var í lofti deginum áður. Prestur var sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og við athöfnina söng Bergþór Pálsson og karlakórinn Þrestir. Einsöngvari í veislu var Gissur Páll Gissurarson og um undirleik sá Jónas Þórir.
Myndatökur fóru fram í Hellisgerði og veislan haldin í hátíðarsal Flensborgarskóla. Myndgerð og klipping: Ásvaldur Kristjánsson frá akfilm.is
Búnaður við kvikmyndatökur: Sony Z1 HDV, Sony TDX-10 og Canon 550D á 50i. Manfrotto þrífótur og braut frá DPslider.com. Hljóð tekið með Sennheiser g2 þráðlaust, sennheiser MKH 416 shotgun ásamt Zoom H1 hljóðupptökutæki. Hljóð í veislusal sent með Sennheiser sendikubb úr hljóðkerfinu.
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Bloggar, Kvikmyndir, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.