Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
Brúðkaup 2008
Sunnudagur, 13. apríl 2008
Vinsæl dagsetning í ár virðist vera 08.08.08 sem er reyndar á föstudegi. Í mars sl. voru tvær brúðkaupssýningar, önnur í Garðheimum en hin fór fram í Blómavali í Skútuvogi. Um 20 fyrirtæki kynntu vörur sínar og þjónustu. Elín María Björnsdóttir, sem stjórnaði Brúðkaupsþættinum Já, kynnti fjölbreytta dagskrá. Sjá má stutt yfirlit á http://youtube.com/brudkaupsvideo en þar má líka sjá myndbrot úr nokkrum brúðkaupum.